Ég heiti Hálfdán Örnólfsson og starfaði sem framhaldsskólakennari í rúm fjörutíu ár. Helstu kennslugreinar voru stærðfræði og viðskiptagreinar. Ég fékk snemma áhuga á að nýta tölvur sem stuðningstæki við kennsluna og fór að fikta við hugbúnaðargerð í því skyni. Forritin sem hægt er að sækja á þessa síðu eru afrakstur þess fikts. Einhverjum kann að virðast einkennilegt að forritin skuli vera lögð út á síðu sem annars er helguð fjalli fyrir vestan en ástæðan fyrir því er sú að ég á ættir að rekja til svæðisins, sem þetta ágæta fjall setur svip sinn á, og hef til þess slíkar taugar að líklega má jafna því við einhvers konar áráttu. Annað sem styður við þessa notkun á síðunni er að mér er í blóð borin sú regla að nýta alla hluti svo vel sem kostur er og því sé ég enga ástæðu til að setja á stofn sérstaka heimasíðu fyrir forritin hafandi þegar komið á fót síðu til dýrðar fjallinu.

Ég vona að síðan eigi eftir að vera sem flestum til gagns og ánægju. Hvort sem það felst í notkun forritanna eða bara því að skoða fjallið dásamlega.