Hér má nálgast forrit sem eru ætluð til þjálfunar og mats á stöðu nemenda í nokkrum afmörkuðum námsþáttum. Forritin henta fyrir bæði einstaklings og hópavinnu og upplagt er að nýta þau til að hjálpa nemendum sem hafa af einhverjum ástæðum dregist aftur úr í náminu. Þetta er tilraunaverkefni og allar ábendingar eru vel þegnar.








Forritin eru sjálfstæð (óháð netsambandi eftir niðurhal) en virka einungis með Windows stýrikerfi . Virkni þeirra er í stuttu máli þannig að þau búa til dæmi eða verkefni, taka við lausnum og veita endurgjöf. Hér er listi yfir forritin með nánari upplýsingum og krækjum fyrir niðurhal:
- Flatarmál og ummál. Finna flatarmál, ummál eða einstakar hliðar á flatarmyndum. Boðið er upp á rétthyrninga, þríhyrninga, skífur, trapisur, marghyrninga og ýmsa samsetninga. Niðurhal.
- Rúmmál og yfirborð. Finna rúmmál, yfirborð og fleira í þrívíðum hlutum. Boðið er upp á ferstrendinga, sívalninga, þrístrendinga, kúlur, pýramída, keilur og kringlur. Niðurhal.
- Hugarreikningur. Framkvæma reikniaðgerðir (samlagningu, frádrátt, margföldun, deilingu, blandaðar aðgerðir) á þremur tölum innan ákveðinna tímamarka. Hægt er að stilla tíma og tölustærðir. Niðurhal.
- Liðun og þáttun. Þátta eða liða fyrsta og annars stigs margliður. Niðurhal.
- Samlagning brota. Leggja saman þrjú talnabrot. Boðið er upp á aðstoð við samnefnara og lengingu brotanna. Niðurhal.
- Talningar og líkur. Finna á hve marga vegu hægt er að framkvæma ýmsa hluti og hvaða líkur séu á tilteknum atburðum. Niðurhal.
- Hornaföll. Finna horn og/eða hliðar á rétthyrndum þríhyrningi. Niðurhal.
- Annars stigs margliða og fleygbogi. Leysa annars stigs margliðu og finna lykilpunkta samsvarandi fleygboga. Niðurhal.
- Vextir og vaxtavextir. Finna hinar ýmsu stærðir í einföldum og samsettum vaxtareikningi. Formúlur og skýringar fylgja. Niðurhal.
- Jöfnur með brotum. Niðurhal.
- Jöfnur með brotum og svigum. Niðurhal.
Vandamál við keyrslu forritanna: Líklegt er að nýlegar uppfærslur á Windows hiki við að keyra sum forritanna og því er brugðið á það ráð að hlaða niður möppu með skrám sem auðvelda stýrikerfinu að greina hvað hér er á ferðinni. Þetta flækir málið svolítið fyrir notendur og því fylgja hér leiðbeiningar.
| 1. Hlaða niður möppu | ![]() |
| 2. Smella á möppuna. Skrárnar birtast. | ![]() |
| 3. Tvísmella á skrána með bláa deplinum (vexovax). Þá kemur áskorun um að opna möppuna (extract all). | ![]() |
| 4. Skrárnar birtast aftur. Tvísmella á skrána með bláa deplinum . | ![]() |
| 5. Viðvörun frá Microsoft Defender birtist. Smelltu á More info. | ![]() |
| 6. Takki sem gerir kleift að keyra forritið birtist (Run anyway). Smella á hann. | ![]() |
Þetta er smá fyrirhöfn en aðferðin veitir nægilegar upplýsingar þannig að ólíklegt er að varnir tölvunnar muni amast við forritinu. Eftir heppnað niðurhal er ekkert sem truflar notkun forritsins á viðkomandi tölvu.





